Örnálameðferð – Nýjung frá Casmara
Einstök nýjung frá Casmara, hluti af nýrri línu fyrirtækisins sem byggir á nýjustu tækni í andlitsmeðferðum. Þessi nýja tækni gefur enn meiri árangur en nokkur önnur örnálameðferð sem þekkt hefur verið hingað til. Meðferðin vinnur einstaklega vel á öldrunareinkennum húðarinnar og getur gefið árangur sem jafnast á við fegrunaraðgerðir með lágmarks inngripi og án aukaverkana.
Árangurinn er einstakur
Casmara Activator penninn er næsta kynslóð örnálameðferða og setur hann því í sérflokk hvað varðar virkni, nákvæmni, öryggi og árangur.
Í meðferðinni er virku efni sem inniheldur Hyaluronic sýru og vítamínum þrýst dýpra í húðina en við höfum áður náð að gera með örfínum nálum. Þannig náum við að vinna djúpt í húðinni, örva náttúrlega endurnýjun hennar, auka myndun kollangens og elastins sem leiðir til þess að húðin verður þéttari og áferðarfallegri. Í lok meðferðarinnar er settur róandi lúxus maski og svo nærandi krem.
Casmara býður upp á þrenns konar lífrænar meðferðir sem vinna á öldrun húðarinnar: “INSTAWHITE+, AGE REVERSE & RADIANCE VITAMIN”. Fyrrgreindar meðferðir ásamt örnálameðferðinni veita einstaklega góðan árangur. Allar innihalda þær hyaluronic sýru sem veitir húðinni einstaklega mikinn raka og eykur upptöku húðarinnar á virkum efnum sem gefur sýnilegan árangur jafnvel eftir fyrstu meðferð.
Árangur sést eftir eitt skipti en mælt er með að koma í 4-6 meðferðir og má aðeins endurtaka þennan kúr einu sinni á ári. Við metum hvernig best er að haga meðferðunum eftir húðgerð viðskiptavinarins og gerum meðferðar áætlun sem hentar best fyrir hvern og einn viðskiptavin. Tími á milli meðferða getur verið frá sjö og uppí fjórtán daga.
Eftir meðferðina getur húðin verið rauð og smá bólgin í einn til þrjá sólahringa, passa þarf að næra húðina vel á milli meðferða.
Nokkur atriði um Casmara Activator pennann:
-
- Casmara Activator Pen vinnur beint ofan í húðina og er stjórnað með rólegum hreyfingum og mikilli nákvæmni.
- Meðferð með Activator Pen er mun öruggari og áhrifaríkari þökk sé lóðréttri virkni pennans og er hún síður til þess fallin að vera sársaukafull og/eða skilja eftir ör á húðinni.
- Með Activator Pen eru eins konar hrein og bein göng gerð í húðina sem veita þeim lífrænu efnum sem unnið er með greiða leið inn í húðina. Með þessari aðferð næst hámarks árangur.
- Þá þarf ekki að nota afl þegar Activator Pen er notaður sem gerir virknina mun nákvæmari. Þessi einstaka tækni gerir okkur kleift að nota hana á allt andlitið, meira að segja á viðkvæmari svæði andlits eins og efri varasvæði, augnsvæði og húðina í kringum nefið sem getur verið erfitt að meðhöndla með öðrum tækjum.
- Sjálfvirku birgðakerfi pennans er stjórnað á þann hátt að snyrtifræðingurinn getur borið virka efnið á húðina þar sem verið er að vinna þannig að ekkert af virka efninu fer til spillis. Snyrtifræðingurinn hefur því góðan tíma til þess að vinna efnið inn í húðina af mikilli nákvæmni.
Activator Pen er nákvæmari, öruggari, hreinlátari og áhrifaríkari en flestar aðrar örnálameðferðir jafnvel þó meðferðin verði að teljast minna inngrip.