Almennt

Snyrtistofan Garðatorgi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.

Pantanir

Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Gjafakort eru send á PDF formi í tölvupósti og getur viðskiptavinur framvísað því í síma eða útprentuðu.

Greiðslumöguleikar

Snyrtistofan Garðatorgi býður upp á að greiða með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu frá SaltPay. Við tökum við öllum greiðslukortum.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Ekki er hægt að fá gjafakort endurgreidd en hægt er að breyta innihaldi gjafabréfs og eftir atvikum greiða mismuninn.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.

Trúnaður

Snyrtistofan Garðatorgi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Skilmálar þessir gilda frá 20. nóvember 2018.

Snyrtistofan Garðatorgi (Object ehf)
Garðatorgi 7
210 Garðabæ
Opnunartími: 9-18 á virkum dögum og 10-14 á laugardögum

Tölvupóstfang: erna@snyrtistofangardatorgi.is
Sími: 565-9120
Kt: 610104-3470
VSK númer: 81731